Eftir hverju er barnið þá eiginlega að bíða, fyrst það er tilbúið og allt? 'tiiiis teh shjæt!
Ástæðan fyrir bloggleysi er að ég er svo uninspired. Ótrúlegt þegar maður hengur ekki lengur með pirrandi fólki og er bara hamingjusamur upp fyrir haus þá hefur maður bara ekkert til að væla yfir.
Ætla bara í staðinn að koma með eitt döll blogg. Smá recap af seinustu dögum.
Barnið okkar er tilbúið, það er fastskorðað og allt. Fyrir þá sem ekki vita hvað það þýðir þá þýðir það að barnið mitt snýr rétt og er fast þannig, þannig so far er útlit fyrir það að ég þurfi ekki að fara í keisara! Sem eru aaaalltaf góðar fréttir.
Ekki að keisarabörn séu eitthvað verri, enda eru mestu snillingarnir í famelíunni keisarar.
Horfði á hlustendaverðlaun FM957, fannst þau alveg ágæt. Að halda svona hátíðir eru bara ekki okkar sterkasta hlið. Fegin að Selma vann ekki júróvísjón, við hefðum svooo klúðrað því. Nokkrir svona punktar til að hafa í huga.
- Ekki hafa svona bjart í áhorfendasalnum, fólk verður spéhræddara.
- Hafa tónlistina aðeins hærri þegar fólk er að syngja, fannst alltaf eins og þetta væri karókí.
- Hafa fyrirfram planaða hluti sem fólk á að segja þegar það kemur fram, sumir eru bara ekki góðir í spuna.
- Í guðanna bænum HÆTTIÐI að líma umslögin!! Man enginn eftir fyrstu Edduverðlaunahátíðinni eða? Fólk þurfti án gríns SKÆRI! Þetta er bara vandræðalegt.
- Ákveðið áður en þið farið upp á svið hver á að segja sigurvegarann.
- Ákveðið áður en þið farið upp á svið hverjum þið ætlið að þakka.
Fannst Sveppi alveg frábær þarna... frábært hvernig hann bjargaði klúðrinu, klúðrið með að láta manneskjuna í MIÐJUM salnum vinna símann.
Ef þetta hefði verið einhver annar en Sveppi þá hefði orðið góð vandræðaleg þögn/bið meðan hann var að finna gelluna.
Svona fyrir utan þetta þá var þetta bara ágætt, þrátt fyrir vandræðahrollina sem maður fékk þegar Magni söng og Mercedes club performaði. Ætla ekki að segja að hún hafi verið að syngja... þetta var performance. En hey auðvitað verðiði að döbba gelluna í hljómsveitinni ykkar þegar þið veljið gellu sem kann ekki að syngja.
Takk fyrir
Telma
Eftir hverju er barnið þá eiginlega að bíða, fyrst það er tilbúið og allt? knús og koss..
