Barniđ mitt

Ég!

  • Nafn: Telma Glóey
  • Netfang: liebficke@hotmail.com
  • Stađur: Garđabćr!
  • Heimilisfang: Hrísmóarnir
  • Atvinna: Fćđingarorlof
  • Hjúskaparstađa: Sambúđ
  • Um mig: Klikkast í hausnum!
  • Annađ: Slúttum'essu bara!

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

I'm even a sidekick in my own fantasy!

22. ágúst 2006 klukkan 05:24

Hæj!

Kristrún hringdi í mig í gær og sagðist ætla að flytja til systur sinnar, þetta er nátturulega rosalega dýr leiga og hún fær að vera frítt hjá systur sinni :) skil það nú alveg.
En hvar á ég að eiga heima? ... og vitiði hva :) ég og siggi töluðum saman og við ætlum að flytja inn saman!! Ég á svo fullt af húsgögnum en ekki hann :D


Svo er ég forfallin sudoku fíkill! Ég er alltaf í sudoku, það er frábær leikur! í alvöru!
Ég er bara svo slæm með tölur :/ vonandi læknar þessi leikur það. Ég er alveg að vona það!


Ég hef samt ekkert fréttnæmt að segja :) ég get reyndar sagt eitt rosalega krúttlegt. Systir mín er fjagra ára og hún sagði um daginn "æji mamma, ég er með svo mikinn saumaskap í fótnum!" :D sætasta lýsing á náladofa í heimi!



Á meðan ég er að skrifa þetta þá er ég að komast að því að það er ekki hægt að blogga og horfa á sjónvarpið þannig ég gefst bara upp!

kveðja,
Telma

Dottin í Rockstar!

17. ágúst 2006 klukkan 05:18
Okey hvað er að?? Ég er alltaf veik seinustu næturvaktina!

Það er samt er ömurlegt að vera bara ein heima veik á meðan allir sem maður þekkir á svæðinu eru að vinna eða að sofa. Ég náttúrulega svaf nóg í dag til að vera vakandi fram á morgun. Þannig ef einhver er vakandi á þessum tíma og eru á Akranesi eða í kringum Akranes þá væri fínt að fá heimsókn :D

Var að horfa á Rockstar supernova, hann Magni er alltaf solid. En sjitt hvað Lukas Rossi er foxí gaur! Var að horfa á eitthvað það sem hann var að gera með hljómsveitinni sinni áður en hann kom í þetta dæmi og vá hann er alveg sexý sko :D



Sjáiði hann bara! Hvernig er ekki hægt að finnast hann æðislegur!

Annað í fréttum er að ég er alveg hamingjusömust í heimi að mínu mati :D langar bara að springa! Sama þótt að lífið mitt sé bara svona í bið því að mér finnst eins og það sé ekkert beint hægt að gera þegar maður vinnur í þessarri vinnu. Bíð bara eftir að fá sumarfrí næsta sumar. Það er nú samt alveg frekar langt í það!

Kem norður fyrstu helgina í September! Það er alveg pottþétt!
Þetta er ferð til að hitta fólkið sem ég hef ekki hitt svo lengi lengi. Fjölskyldan, Þór og Berþóra eru alveg í topp forgangi. Flest hinir mæta afgangi ;) haha nei ég segi svona.. ég sakna svo margra og ég ætla að reyna að hitta ykkur öll!

Þangað til þá,
Telma

Orð: Ef Lukas Rossi verður í þessarri hljómsveit þá kaupi ég ALLA diskana! Sjitt hvað ég dýrka röddina hans! Langar að komast að því hvort hann hafi gefið út diska.
Svo var btw ógeðslega augljóst og óspennandi að Dilana fengi að spila lagið og ég myndi ekki kaupa diskinn með henni!

Sloppy and lazy.. that's what we are!

15. ágúst 2006 klukkan 08:06
Finnst ykkur ekki alltaf eins og Íslendingar séu svo miklir amatorar? Bara í öllu sem þeir gera... ! Auglýsingarnar eru alltaf svo low budget og ófrumlegar og ég tala nú ekki um lélega leiknar! Svo eru svona dansarar og allt þetta.. þetta eru rosalega flottir dansarar/málarar/listamenn en samt svo miklir amatorar!
Finnst eins og íslendingar nenni ekki að gefa sig 110% í neitt! Ég meina.. þúst ég er ekkert að segja að ég sé eitthvað öðruvísi. Það er bara.. hmm... hvernig á ég að útskýra...?

Dæmi: Dansflokkur í USA er að fara að halda sýningu, allir í sýningunni eru búnir að læra öll atriðin, hafa lifað fyrir þessa einu sýningu! Gera enga villu því að þau voru nótt og dag að æfa sig. Svo kemur dansflokkurinn frá Íslandi og þau æfðu sig líka fyrir þetta, en þetta er bara hobby fyrir þau! Jú auðvitað æfðu þau rosalega mikið... en heeeefðu nú alveg getað verið að æfa þetta þegar þau fóru þetta skipti í bíó eða þegar sumar stelpurnar voru bara að leigja vidjó með kærastanum. Á meðan þau voru alltaf að "verðlauna" sig fyrir hvað þau voru dugleg að æfa sig með því að taka sér pásu þá voru USA krakkarnir að æfa sig og æfa sig.
 

Ég er samt bara að röfla um eitthvað sem mér datt í hug því að mér leiddist að horfa á tónlistarmyndbönd, ef ég héldi áfram að horfa þá fengi ég flogakast! Hverjum datt í hug að gera svona mörg blikkmyndbönd, eins og þau séu eitthvað svalari þegar maður getur varla horft á þau án þess að froðufella!??!

Það var party seinasta föstudagskvöld sem var rosalega skemmtilegt, það komu reyndar alveg slatti og miklu meira en ég bjóst við! Drukkið hæfilega mikið og farið á mörkina, dansað svolítið og haft gaman og svo ætlaði ég heim. Nema hvað allir voru að tala um eftirparty en málið er að það er búið að vera að kvarta undan eftirpartyum hjá okkur þannig ég vildi helst ekki halda þannig. En það var of seint, allir voru á leiðinni heim til mín. Meira að segja fullt af fólki sem ég kannaðist ekki einu sinni við. Ég vorkenni fólkinu sem ég á heima með... þegar ég er orðin eldri þá vil ég ekki eiga heima í blokk með einu stk mér!

Avatarmyndirnar eiga að sýna hvernig mér líður þessa dagana :D

kveðja,
happy happy Telma

Frábćrir dagar !

10. ágúst 2006 klukkan 19:18

Var að koma í vaktarfrí en ég er veik :( fór heim veik af seinustu vaktinni og svaf voða illa og vaknaði við það að ég var bara að kafna úr hósta, verð að segja að það er ein versta vakning sem ég veit um!

Svo hringdi pabbi í gærmorgun og sagði mér að ég mætti bara eiga alla búslóðina hans! :D sjiiiiiiitt sko... mér er búið að dreyma um sófann hans for ages! Þetta er alveg mest kósý sófi, sekkur alveg í hann! Alltaf þegar ég hef verið að horfa á tv í sófanum hans þá hef ég sofnað :D og ég btw sofna aldrei við tv :D svo fæ ég fullt af einhverju öðru shitti sem er bara best í heimi!

Svo var dragdrottningusýningin í gærkvöldi og kristrún og Arnar voru ekki að taka því sem góðu svari að ég væri veik. Þannig ég reif mig frammúr, en þá var búið að loka og uppselt þegar við komum! :(
Fórum þá bara að fá okkur bjór á Café Cosy, eða sko þau fengu sér bjór, ég fékk mér kaffi. Svo heyrði ég í Garðari (fyrir þau sem vita það ekki þá er hann fyrrverandi stjúpbróðir minn, það virkar þannig að pabbi minn ól hann upp en á ekkert í honum! Svo skildu mamma hans og pabbi minn, hence fyrrverandi)
Hann bauð mér upp á áfengi og vorum að þræta um sófann hans pabba og vorum bæði að senda honum sms og eitthvað :D pabbi var örugglega ein taugahrúga því hann vissi ekkert hvor krakkanum sínum hann ætti að gefa sófann :D ÉG VANN! Eða sko held að Garðar hafi leyft mér að vinna :D

Svo er party á föstudaginn, svona velkomin heim Ylfa og Tóta og kveðjuparty fyrir Röggu því hún er að flytja til útlanda frá okkur.

Þar næst er planið að fara á Gay-pride skrúðgönguna á laugardaginn... hef aldrei séð þetta en ég held þetta verði rosalega flott. Hef heyrt það :)

Sunnudagur: back 2 wrk :(

kveðja,
Telma

Stór útgjöld! (ekki mikil;))

04. ágúst 2006 klukkan 06:48

Vaktartörnin alveg að klárast, bara föstudagurinn eftir og svo back too wrk.
Kristrún fór til eyja í dag og hún fór með Arnari sem er gaur á vaktinni okkar og áður en þið fáið einhverjar grillur í hausinn þá er hann "out and proud" gaur :)
Það voru víst einhver vandræði með með tjaldið og allt dótið þeirra... as in það varð ÓGEÐSLEGA  MIKIL RIGNING OG ALLT VARÐ BLAUTT AHAAHAHAHAHAHA :D:D þau urðu að flýja inn í íþróttahúsið og það er verið að þurka allt hjá þeim :D

En ég er annars búin að eyða fríinu í það að eyða allt of miklum pening í BRJÁLUÐU útsölurnar í rvk. Fór fyrst með Sigga suður á þriðj held ég að það hafi verið, ótrúlega gott veður... alveg klikkað! Kikkuðum fyrst á tívolíinu en gerðum ekkert, vorum bara svona röltandi um að njóta veðursins. Svo fórum við inn í Smáralind þar sem ég eyddi pening... oooooog lét hann líka eyða smá *slæm áhrif* :D En núna er hann tveimur polobolum ríkari *sís*. Svo var það American style og dagurinn endaði á góðum göngutúr hjá austurstrætinu og ís :D

Svo næsti dagur fór í að versla með Kristrúnu og Ylfu og endaði þannig að ég gisti bara hjá Ylfu því að við ætluðum að versla meira næsta dag :D Sjiiiitt... fórum þá í hellirigningu í Kringluna (þá er ég að meina að við löbbuðum frá háteigskirkju...víííjhhh:)) Eyddum öllum deginum í Kringlunni að eyða pening...
Svo bara til að þið sjáið í hvað ég var að eyða þá kemur listinn hér: 
              
               1 Peysa
               1 Buxur
               5 bolir
               2 brjóstahaldarar
               3 hot pants
               1 úlpu

               Fyrsta serían af Scrubs
               Blend skór
Þarna er það :D allt sem ég keypti og þetta kostaði ekki neitt neitt... eyddi örugglega meiri pening í mat!

Kveðja,
Telma

Helluđ!

26. júlí 2006 klukkan 09:03


 Heyyyyy...
 Lítið búið að gerast annað en ég var að klára vaktartörn og er í fríi núna. Ylfa var að koma til landsins sem er AWESOME :D fór suður að hitta hana og fengum okkur latte og subway upp á gamla tíma. Sjitt það var alveg næs og fékk svona gamla góða tilfinningu í mallann, eins og hún hefði aldrei farið.

Ég fór í afmæli til hans Óskars á laugardagskvöldið og það byrjaði sem bara hið fínasta kvöld. Var bara í góðu stuði, góð bolla með ávöxtum í og skemmtileg bandarísk stelpa til að spjalla við. Plús margir æskuvinir og svona. Svo varð bollan aðeins of góð og Telma bara kláraði ávextina! Svo ákváðu nokkrir að fara í drykkjuleik sem ég gat enganvegin skilið og ég var bara alltaf að drekka og þar á milli að narta í ávextina. Váááá... ég meikaði ekki að sitja þar lengur þannig ég fór í heimsókn til my old friend "the toilet", ójá we go waaaaay back! Ég þekki það alveg þarna ofaní... alveg ofaní og undir!
Djöfull var ég alveg wasted! Lá þarna eitthvað á gólfinu alveg í ruglinu þegar ég fékk símtal frá Sigga en hann var bara eitthvað að chilla á Akranesi og ég man ekki alveg eftir símtalinu en næsta sem ég veit er að ég er að labba úti einhverstaðar bara eitthvað á röltinu og fæ annað símtal frá Sigga og ég man samt ekki alveg hvað við spjölluðum um, eitthvað um að ég væri að labba hjá stóru klukkunni og hann vildi vita alveg nákvæmlega hvar ég var. Skildi ekkert afhverju. Svo settist ég bara niður hjá stóru klukkunni og ákvað að chilla þar bara... kynnast götunni aðeins og gefa henni að borða (eeeewwww). Svo fór ég að hugsa... hveeeernig get ég drepið tímann... hmm... hey ég veit! Ég fer bara að gráta! Þannig ég sat þarna og grét yfir engu, ég vissi ekkert hvað ég var að fara að gera né neitt. Svo hringir Óskar og kemur og liggur þarna hjá mér, alveg svipað búinn á því og ég held ég... samt aðeins minna :D Svo hringir Siggi í þriðja skiptið og þá var hann bara kominn :D akkúrat þarna! Að sækja mig! Vá hvað það gerði allt miklu betra! Svo man ég ekki meir... vaknaði bara hérna á Akranesi :D

Alveg með þeim styttri fylleríum og mest wasted fylleríum...

Kveðja,
Telma

Erđarleysi.... <3

21. júlí 2006 klukkan 07:27
Hvernig er hægt að líða svona hræðilega illa og vera svona ótrúlega óhamingjusamur en samt líða svo fáránlega vel.
Þetta er erfitt að útskýra...

Sko í fyrsta lagi þá er ég hætt að geta sofið á næturnar, það er bara ógerlegt. Ég ligg bara og allt gerist í hausnum á mér og það er ekkert skemmtilegt. Ég er ekkert að hugsa um neitt skemmtilegt... nema stundum svona fer ég að hallast í eitthvað skemmtilegt og þá breytist það bara í eitthvað ömurlegt. 

Það koma svona andartök sem mér langar bara að flytja heim til Akureyrar aftur því að mér finnst ekkert vera að ganga og bara allt sé hræðilegt. En málið er að það er ekki ALLT svo hræðilegt...
Núna er það bara vinnan og eitt annað sem heldur í mann hérna og það er ekki félagskapurinn í vinnunni btw ! Það eru reyndar alveg fullt af fólki þarna sem er frábært...
 
En ég er ótrúlega ánægð sko... ég sé samt ekki fram á að ég ætli að eiga heima hérna eitthvað í framtíðinni sko, þetta er bara svona millitímaástand. Ef það væru svona góð laun heima á Akureyri þá hefði ég örugglega ekkert farið!
Ég sé samt alls ekki eftir því að hafa farið, þetta er æðislegt sko... svona í heildina litið.
Ég vil samt ekki flytja heim aftur... ekki næstum því strax.. því þessi hlutur sem er að gera mig ánægða er að gera mig svo rosalega ánægða :)



Það vantar bara eitthvað.

Kveðja,
Telma

Ekkert spes í gangi...

19. júlí 2006 klukkan 01:36









Hafiði spáð í því að gerast grænmetisætur?
Ég persónulega hef aldrei nokkurntíman spáð í því... finnst það svo kjánalegt. Er svo bjánalegt statement. Mér er btw alveg sama þótt þið séuð það og trúið svona rosalega á það. Ég er alveg til í að hlusta á rök ykkar fyrir því að vera grænmetisæta, en þið eigið aldrei nokkurntíman eftir að sannfæra mig. ´
Sé ekkert heillandi við það að borða ekki kjöt, ég borða nú ekki mikið kjöt sko en samt alveg nóg. Manneskjur eru alætur og þannig er það bara, tough luck!
Ég skil alveg fólk sem notar ekki vörur sem eru testaðar á dýrum, það er nátturulega ógeðslegt að vera að sprauta einhverjum efnum í lítil saklaus dýr til þess að sjá viðbrögðin við þessum efnum. En ég er ekkert að fara að hætta að nota colgate eða head and shoulders því að það er dýratestað. Ég veit ég er rosalega eigingjörn á því að hugsa svona en ég bara nenni ekki að fórna mínum uppáhaldsvörum því að það er testað eitthvað vitlaust. Ef ég væri að fara að prófa eitthvað meik t.d. og það væri val um tvö meik, alveg jafn mikil gæði í þeim nema eitt væri testað á dýrum og hitt ekki, þá myndi ég alveg velja það sem væri ekki testað á dýrum. En ég er ekkert að fara að lesa aftan á hvern einasta hlut sem ég er að kaupa eða lesa einhvern endalausan lista á netinu yfir vörur sem eru testaðar á dýrum... er ég köld fyrir að hugsa svona? Njaaahh...

Er í Reykjavík núna með Kristrúnu og erum á prikinu eins og alltaf að netast, það er rosalega fínt.
Fór á Oliver áðan með pabba og tvem systkynunum mínum og svo nýju konunni hans pabba, sem er btw óóóótrulega næs og flott. Lýst alveg bara úber vel á hana, hún er velkomin að minni hálfu.
En já ég fór á Oliver, núna hugsa kannski einhverjir "neiii omg telma fórstu þangað... sjitt það er algjör plebbapleis, bara snobb og hnakkar og hnakkamellur eru þar... sjiiiitt". HVERJUM ER EKKI SAMA! Sjitt... finnst það bara ekki skipta neinu máli hvar maður fer að borða með famelíunni! 

Mér leiðist samt alveg heavy, sko ekkert akkúrat NÚNA en bara svona yfir höfuð. Hef ekkert beinlínis að gera. Langar að byrja að æfa fótbolta aftur... ekkert endilega til að keppa né neitt svoleiðis heldur bara til að vera að gera eitthvað. Svo langar mig heavy að fara til útlanda eða bara útilegu eða sumarbústaðaferð. Bara eitthvað til að finna að það sé sumar! Gæti alveg farið smá til útlanda... bara smá... en þá þyrfti ég að fresta að borga skuldir í tvo mánuði og ég tími því eiginlega ekki. Ég ætla að vera algjör nánös næstu mánuði þangað til ég losna alveg við skuldirnar... sjiittt hvað það verður góð tilfinning.  Ég var að reikna út hvað ég verð lengi að borga þessar skuldir, það fer nátturulega allt eftir því hvað ég fæ útborgað og allt eftir því, en það verður svona hálft ár í viðbót... ég veit ég veit ég skulda alltof mikið en ég sé ekkert eftir þessum pening og þetta fór allt í eitthvað skemmtilegt :D
og núna er hálft ár þangað til ég get gert eitthvað skemmtilegt aftur. Tek mér bara smá frí í febrúar og geri eitthvað skemmtilegt :D þetta verður fljótt að líða. Langar bara að losa mig við þessa íbúð og finna eitthvað betra til að leigja... þetta er alveg way too dýr leiga!


Vá þetta var ekki skemmtileg færsla... dont read it!

Kveðja,
Telma

Grunnskólagođsögn... eđa bara glatađur gaur?

17. júlí 2006 klukkan 10:51
"Thoughts free flow try to consume myself in this
I'm not faithless
Just paranoid of getting lost or that I might lose
Ignorance is bliss cherish it
"


Það muna allir eftir grunnskóla, fyrir suma var hann alveg það einfaldasta í heimi en aðra þá var þetta kvöl og pína og kannski jafnvel ennþá núna nokkrum árum seinna að jafna sig eftir það sem gerðist þá. Allavega þá fór ég í alveg sex grunnskóla, þannig ég er með alveg frekar góða mynd af hinum ýmsu grunnskólum. Eitt sem ég prófaði ekki og það var að vera lengi í sama grunnskóla, þá tilfinningu. 

Það var alltaf sagt við alla krakka sem þurftu að ganga í gegnum erfitt í grunnskóla að þetta myndi allt breytast í menntaskóla, sem það gerði. En samt ekki hjá sumum, eða þúst... sumir dýrkuðu grunnskólann. Það eru nú oftast bara það sem kallast "A Crowdið" eða "vinsælu" krakkarnir. Þeir svona halda í grunnskóla frægðina, halda að allir dýrki þá jafn mikið og þeir séu ennþá "sætasta stelpan í bekkknum" eða "aðal töffarinn". Þegar fólk er farið að síga í tvítugt finnst mér þau ættu að stíga aðeins af skýinu sínu og koma niður á jörðina og hætta að láta eins og asnar við annað fólk. 

Hefuru einhverntíman lent í því að standa í hóp og allir eru eitthvað að tala og þú ákveður að koma einu góðu commenti á þetta sem allir eru að tala um, bara svona til að taka þátt. En út af því að þú sagðir kannski eitthvað vitlaust, mismæltir þig, ert ekki nógu sniðugur eða bara eitthvað fór úrskeiðis. Þá stenduru þarna, allir horfa fyrst svona á þig... ranghvolfa í sér augunum og aðrir hrista hausinn og sumir jafnvel hlægja. En engum fannst sniðugt það sem þú sagðir. Svo kemur einhver önnur manneskja sem allir dýrka og dá inn... hún kemur og segir orðrétt það sem þú varst að segja og allir tryllast af hlátri... "sjitt hvað þú ert sniðugur... haha", eitthvað svona comment. 

Þetta er það sem ég kalla alveg klassískt grunnskólastæla dæmi. 
Alveg það glataðasta sem ég veit um sko. 

Suma jafnvel skiptir ennþá máli hvort manneskjan sem þeir eru með í dag (það er að segja orðin yfir tvítugt eða um tvítugt) hafi verið vinsæl/ll í grunnskóla. Þótt þeir myndu aldrei viðurkenna það, þá hrjáir það þá. 

Vá kannski er ég bara eitthvað að rugla en ég bara var að pæla í þessu. Sumar manneskjur eru alveg frábærar, getur talað endalaust við þær um allt í heiminum og þú alveg fílar þær í botn. En svo kemur ein önnur persóna inn í samtalið. Þá er hin manneskjan orðin einhver allt önnur og drullar bara eitthvað yfir þig og ef hann drullar ekki yfir þig þá er hann bara að setja út á hvað þú segir eða eitthvað álíka. Ekkert sem þú segir er spennandi lengur og þú ert bara einhver nobody. Bara því að þú ert ekki þessi klassíska "A Crowd" manneskja, gvuð þá geturu nátturulega ekki mögulega verið áhugaverð á nokkurn hátt. 

Reynir að hífa þig upp á einhverri glataðari "grunnskóla frægð" með því að ranghvolfa í þér augunum þegar manneskjan er bara að reyna að tala við þig og reyna að vera hún sjálf.Hún hættir bara alveg að tala við þig þegar þú stendur með einhverjum öðrum... þangað til hún hættir alveg að tala við þig bara yfir höfuð. Þér finnst það nú ekki mikill missir samt, þar sem þetta var ekkert það skemmtileg manneskja sko... alls ekki vinsæl.. sjitt sko, gvuð sé lof að þú náðir að losna frá henni. Þarft ekki að skammast þín lengur fyrir hvað hún segir... iss piss.

Btw, þið sem eigið eftir að finnast þetta vera algjört rugl... þið eruð hin manneskjan. 

"And I'm praying that we will see
Something there in between
Then and there that exceeds all we can dream
So we can talk about it"


Lagið í þessarri færslu: Flyleaf - So I thought
 
Kveðja
Telma

Mindless íhugun.... druslur eđa bara einmanna stelpur?

15. júlí 2006 klukkan 11:01

"Everyone's a let down
It just depends on how far down they can go
In every circle of friends, there's a whore
The one who flirts and does a little more
But who's to say this is a social scene anyway
"


Fór heim veik úr vinnunni, smá kvennaverkir í gangi. Veit ekki alveg afhverju ég er ekki farin að sofa. Er nátturulega ekkert rosalega þreytt þar sem að ég svaf nóg seinustu nótt til þess að geta vakað alla nóttina í vinnunni.

"And everybody wants to explore the new girl
Cut up in her own hard liquor world
But liquor doesn't exist in my world
"

Okey ísland er svona frekar þekkt fyrir að vera með stelpur sem eru lausar í rásinni. Þær fá sér svolítið í glas og eru mikið fyrir það sem kallað er einnar-nætur-gaman eða bara "one night stand". Verð nú að viðurkenna að ég hef prófað það eins og nánast hver einasta stelpa. Get ekki séð neitt heillandi við það. Það er ekkert leiðinlegra að ríða full, hvað þá að hafa blindfulla manneskju vera að hamast á þér og tekur alveg heila eilífð að fá það. Finnst alltaf að það ætti að vera eitthvað svona connection. Ekki "OMG þessi gaur er svo óóóóóógeðslega hot"-connection heldur að þú getur actually horft á hann á meðan og fengið fiðring í mallan því þú ert svo geggjað skotin í honum og veist að hann fær líka þannig tilfinningu.


"And if you lie, you don't deserve to have friends
If you lie, you don't deserve to have them"


Finnst nefninlega sumar stelpur hafa miskilið þetta, trúið mér ég var ein af þeim og fannst þetta alveg vera frábært þegar strákur vildi sofa hjá mér. En málið er bara að þótt strákar vilji sofa hjá þér þýðir ekki að þú sért sæt eða flott, einfaldlega bara að það sé auðvelt að komast píkunni þinni. Þannig er þetta bara skiljiði? En ekki miskilja samt, auðvitað eiga sætu og flottu stelpurnar auðveldara með að fá gaur... líka sætari og flottari gaura. En þúst þegar líður á djammið og gaurarnir fara að verða graðir og hræddir um að komast ekki heim með neinni. Þá taka þeir nánast hvað sem er.
Sorry.

"you are a sell out
But you couldn't even do that right
So your price tag has been slash
And now you're chilling on a half priced clearance rack"


Finnst ég nú ekki vera að segja neinar fréttir, held að allar stelpurnar sem eru að þessu viti þetta alveg. En það ýtir nú samt aðeins undir sjálfsálitið þegar sætur gaur kemur og talar við þig. Hlær að bröndurunum þínum og kyssir þig svo á dansgólfinu. Svo þegar kemur að því að fara heim þá vill hann fara með þér af öllum gellunum þarna. Svo þegar þið komið heim þá getur hann ekki sleppt þér, hann kyssir þig allstaðar og vill bara klæða þig strax úr og læti.
Svo þegar þetta er allt búið þá segir hann "þú mátt alveg gista ef þú vilt". Þetta er alveg ömurlegasta setning í heimi því að auðvitað máttu alveg gista, en hann vill það samt ekkert. Þá líður þér eins og drullu. Þú þýddir ekkert og hann mun gleyma þér strax.
Þú aðsjálfsögðu segir eitthvað eins og "ha nei ég fer bara heim" eða kemur með lélega afsökun eins og "æj já ég fer bara, þarf að vakna snemma og svona" svo hann fái nú ekki samviskubit. Því auðvitað sagði hann þetta bara svo honum líði betur yfir því að þurfa ekki að hringja í þig eða biðja þig um númerið þitt.

"The social scene where she gets her fix
Has been broken since '86
And just look at that social clique
Do you really wanna be a part of it?"


Svo ertu kannski hrifin af þessum gaur og varst geggjað spennt fyrir því að hann vildi sofa hjá þér en varst nátturulega aldrei að vona eftir einhverju meiru því að þú vissir alveg að það myndi ekki ganga. Svo verðuru samt rosalega sár því að innst inni vildiru að hann myndi halda utanum þig og myndi biðja þig um að gista en ekki segja að þú mættir það alveg.

"Let's not let us forget where she gets the habit
She gets the pills from her skills
And she gets the skills from the pills"


Þótt þetta var bara einhver gaur eða einhver sem þú þekkir og þú vildir alls ekkert meir með honum. Varst ekkert einu sinni hrifin af honum heldur hann var bara svona lala sætur og þú hafðir ekkert betra að gera. Þá viltu samt að hann verði hrifin af þér. Ég meina... auðvitað!
Því öllum stelpum langar að líða eins og þær séu sérstakar. Það geti engin komið í þeirra stað. Að strákurinn sjái ekkert nema hana og vilji gera allt fyrir hana. Það er öruggasta tilfinning í heimi, þegar þú veist að strákurinn myndi aldrei horfa á aðrar stelpur eins og hann horfir á þig.

"And just look at that clique
Do you really wanna be the star of it?"


Mér persónulega finnst ekkert hræðilegra en þegar ég veit ekkert hvar ég stend hjá gaur. Hvort hann sé alveg hrifinn af mér eða hvort hann sé bara að sætta sig við mig. Því að ég var þarna bara og hann hafði ekkert betra að gera og hann hendir mér út um leið og einhver önnur sýnir honum áhuga.
Hef aldrei virkilega sett mig alveg "þarna" út. Svona alveg á opið svæði, er svo hrædd um að verða særð. Held nefninlega að ég myndi aldrei meika það, held ég sé alveg frekar brothætt manneskja. Ég er alltaf svona hálf leitandi af ummerkjum um hvort strákurinn sé að missa áhugann svo ég geti varið mig við því og verið á undan að enda þetta eða eitthvað álíka.

Lagið sem hentaði þessarri færslu: Cute is what we aim for - Newport Living

Ætla bara að benda ykkur á að þetta var bara svona mindless íhugun, þetta tengist ekki á neinn hátt hlutunum sem eru að gerast í lífinu mínu þessa stundina. Mér leiðist bara og fór bara allt í einu að hugsa um þetta. Þetta er samt lengsta fkn færsla sem ég hef gert á ævinni og hef ekki trú á því að einhver sé að lesa þetta ennþá :) takk samt!

Kveðja
Telma

Spurđu Kristalkúluna!


Taurus

Traditional
Taurus Traits



Patient and reliable
Warmhearted and loving
Persistent and determined
Placid and security loving

On the dark side....

Jealous and possessive
Resentful and inflexible
Self-indulgent and greedy

LIKES
-Stability
-Being Attracted
-Things Natural
-Time to Ponder
-Comfort and Pleasure

DISLIKES
-Disruption
-Being pushed too hard
-Synthetic or "man made" things
-Being rushed
-Being indoors

Lay All Your Love on Me