Barnið mitt

Ég!

  • Nafn: Telma Glóey
  • Netfang: liebficke@hotmail.com
  • Staður: Garðabær!
  • Heimilisfang: Hrísmóarnir
  • Atvinna: Fæðingarorlof
  • Hjúskaparstaða: Sambúð
  • Um mig: Klikkast í hausnum!
  • Annað: Slúttum'essu bara!

Innskráningar kubbur

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Emo = lemo = lamo = lame

22. maí 2007 klukkan 03:44
Var menningaferð á föstudaginn sem var hreint afbragð! Fékk meira að segja einskonar ástarjátningu frá alltof fullum pólverja sem vinnur í steypuskálanum hehe... didn't make it any less special ;) hann heitir Mariuz og er massaköggull sem kann varla ensku né íslensku! Það var spes og ég held að Óla hafi ekki verið skemmt ;) Vill þakka öllum sem gerðu kvöldið skemmtilegt ! ;*

En voðalega er ég komin með upp í kok af of emo bloggum sem bara snúast ekki um annað en sjálfsvorkun! Endalausir textar og avatarar sem merkja akkúrat EKKI NEITT... en þér finnst eins og textarnir tali eftir hjarta þínu. Okei ef þú ert að ganga í gegnum eitthvað ömurlegt eins og einhverja ástarsorg eða líður eitthvað krappí. Hef alveg búið til avatarblogg með textum og læti.. en hvernig er hægt að vera svona emo ALL THE TIME! Hættu að vorkenna þér og gerðu bara eitthvað við lífið þitt annað en að eyða því í eitthvað svona rugl!

Hægt að sjá þau á öllum tungumálum og maður þarf ekki einu sinni að skilja tungumálið til að fyllast ógeði og hneikslast yfir þessu emoshitti: http://e43.sag.karlstad.se/it8/traenksemoblog/emoblogg.asp 

Æjj nenni ekki að tjá mig meira um þetta shit. Það er alveg jafn leiðinlegt að tala um þetta og að lesa það.

Long live Nathan Fillion!

16. maí 2007 klukkan 18:17
nathanNathan Fillion er geggjaður gaur... sem þarf að reka managerinn sinn eða þarf að ráða fólk til að lesa handritin sín. Því að hann bara getur ekki valið góð hlutverk! Þúst karakterarnir eru góðir og allt það en hann horfir ekki á heildarmyndina.

Failed:
Firefly - ein af mínum uppáhalds þáttum en það var talið ekki fá nógu gott rating þannig hann var cancelaður eftir held ég 14 þætti or sum. Hann varð eiginlega frægastur fyrir þessa þætti og allir elskuðu hann sem elskuðu Firefly. Hann leikur captain Malcom Reynolds og er geggjaður!

Drive - Nýjir þættir sem hann er einmitt aðalhlutverkið í og leikur samskonar karakter og í Firefly. Svona gaur sem vill alltaf vel og gerir allt fyrir sitt fólk. Held það hafi komið 4 þættir eða kannski aðeins meira.

Svo lék hann nátturulega í Serenity sem er bíómynd sem er hálfgert framhald af Firefly þáttunum. Sló reyndar í gegn held ég. Ég vill meina það allavega. Fannst hún alveg geggjuð!

Eftir það þá fékk hann hlutverk í gamanhryllingsmyndinni Slither sem var nokkuð skondin en sló ekkert í gegn.

Núna er hann að koma í mynd sem heitir White Noise 2: the light. Hún er ekkert geggjuð en hann er samt alveg stjarna í gegn. Þetta er svona mynd sem er bara góð í bíó en ætti ekkert að koma í bíó því hún er ekkert það góð.

Hann vann samt Best Actor 2006 í SyFy Genre Awards sem var þremur árum EFTIR að þættirnir voru teknir af sjónvarpi.

Það sem fáir vita er að hann fór í leikprufu til að fá hlutverk Angels í Buffy the vampire slayer en fékk það ekki heldur fékk hundleiðinlegur leikari það en verð að segja að Fillion hefði ekki passað í það hlutverk. Hann fékk samt hlutverk í sjöundu og seinustu seríunni sem einhver klikkaður prestur with superpowers!

Það sem hann sagði þegar það var cancelað Firefly: "I broke the cardinal rule of don't fall in love with what you're doing, because the rug can get yanked out from underneath you, and when it did, I was heartbroken."

Þetta er mitt óður til hans og ég elska hann og vill sjá miklu meira af honum. Mæli með því að þið sjáið allt með honum sem þið komist í ! Þótt það sé ekkert svo gott ;)

Takk fyrir og bless

Flottur líkami eða beinaber stelpa?

09. maí 2007 klukkan 23:47

Held ég hafi verið að sjá eina mest moving auglýsingu sem ég hef séð á ævinni. Þetta er auglýsing í sjónvarpi en það er líka hægt að horfa á hana hér http://www.forma.go.is/ .

Maður fær svona nett högg á sig og hugsar alveg bara "hvað er ég að væla yfir?".

Finn svo mikinn sting í hjartað þegar það er verið að tala um átröskun því mig langar alltaf bara að hrista manneskjuna og reyna að koma því inn í hennar þykku hauskúpu að hún er ekki feit og þetta sé bara allt í hausnum hennar.
Ég hef aldrei þolað stelpur sem eru alltaf að væla um að þær séu of feitar þegar þær vita alveg upp á hár að þær eru það ekki. Svo halda þær áfram að væla og væla þangað til að vitneskjan um að þær eru ekki feitar sé horfin og þá eru þær í raun búnar að sannfæra sig um að þær séu feitar.
Ef að það voru ekki nógu margir sem mótmæltu eða allir hættir að hlusta þá kemur svona lítil rödd inn í hausinn sem segir "kannski er ég of feit?".

Var alveg með stelpum í bekk sem voru alltaf "omg stelpur sjáðið hvað ég er feit þegar ég sit svona?" og þá kom önnur "ert þú feit? hvað er þá ég???". Síðan var alltafi ein feit stelpa sem horfði bara á þær og hristi hausinn. Stundum sagði hún eitthvað eins og "eruði að grínast? nenniði að halda kjafti?".
Langar alveg að lemja þetta úr stelpum.

Finnst bara stelpur ekki átta sig á því að allar þessar photoshopuðu, ofmáluðu supermodels eru ekkert flottari en þú og ég. Þær eru annað hvort mjög eðlilega vaxnar eða alltof ofurgrannar. Finnst held ég bara ekkert ógeðslegra en beinaber stelpa sérstaklega ef hún heldur að hún þurfi að grennast.

kveðja,

Samfylking sucks balls!

08. maí 2007 klukkan 02:44
Hvað er málið með stjórnmál, ég hef oftast aldrei skipt mér af þeim en núna er þessu einhvernvegin þröngvað upp á mann og ég er með mínar sterku skoðanir þótt að ég viti ekki rass um málin!

Ég berst fyrir mínum flokki og svona en hef ekkert kynnt mér neitt... veit það er frekar stupid en ég er líka frekar stupid ;) híhí

En langar samt að drulla aðeins yfir Samfylkinguna. Hvað er málið með öll þessi loforð? Fyrst þau eiga að geta gert þetta allt afhverju er þá ekki bara löngu búið að gera það?
Þetta hljóta að vera innantóm loforð upp í ermina sko! Langar geggjað að þau verði kosin og feili og en samt geta þá spólað aftur í tímann og látið kjósa einhvern annan en þá myndu allir sjá hversu mikið bullcrap þessi flokkur sé. Ég bara get ekki trúað að þeir geti þetta allt!!

Ég var samt svona að spá... það er verið að segja að Ísland sé alveg eitt af ríkustu löndum heims? Man þetta ekki alveg en ef það er þannig þá finnst mér við alveg geta haft efni á því að gera þetta aðeins betra hérna fyrir okkur. Nema ríkisstjórnin sé í svona "keppni" við hin löndin og eru að reyna að vera í fyrstasæti. Alltaf að reyna að vera í fyrsta sæti "miðað við höfðatölu" alveg glataðasta mál í heimi.

Ég bara veit ekki nógu mikið um stjórnmál til að vera eitthvað að rífa mig... kannski er ég með þetta all wrong. En ég ætla núna í fyrsta skiptið að kjósa á ævi minni. Til hamingju ég! Meika ekki að flokkurinn minn tapi.. þá fæ ég samviskubit ;) every vote counts!!

kveðja,

NÝJI BÍLLINN MINN ER KOMINN

05. maí 2007 klukkan 02:06
Ég elska nýja bílinn minn!

Hann er svo mikil dolla að það er frábært! Kemur skemmtilegt svona pústhljóð og svo virkar bara ljósið í mælaborðinu stundum og já útvarpið save'ar ekki styllingar... það er æði!

Hljómar eins og kaldhæðni en er það samt alls ekki :D lætur vel undir stjórn og svona... ætla að reyna að fixa hann eitthvað til og svona! Fyrir ykkur sem vita ekki þá var pabbi að láta mig fá bíl sem er Opel Vectra eitthvað eitthvað árgerð og hann VAR flottur á litinn fyrir einhverjum árum en núna er hann bara svona has-been ;)

Takk pabbi :*

En annað í fréttum er að það er vaktatörn.

Svo langar mig á línuskauta og ég ætla að skora á hana Stellu mína að koma með mér á línuskauta þegar ég er búin að sækja þá norður :D

Hay Stella!! Ferðu í ferminguna hennar Lilju?? Því ef þú tekur bara línuskautana þína (það er asuming að þú eigir einhverja) og við getum farið á línó á ak ;) en efast um að þú farir... LÆRA MAYBE?!

Það eru alltaf svo slappir póstar þegar ég er á vaktatörn :D svona.... langar að skrifa eitthvað en nenni ekki að finna neitt upp til að skrifa... víí!

Fór á Spiderman áðan kl 23 (já þótt ég eigi að vakna kl 6 í fyrramál) og ég fílaði hana.. þetta var ekkert mindblowing en ég fílaði hana :D

Don't worry be happy!

Kveðja
Telma

Leiðingur

02. maí 2007 klukkan 22:38

Afhverju þarf maður alltaf að vera í tölvu eða horfa á sjónvarp til að skemmta sér saman?


Fór í Kringluna, í Bláa Lónið, í bíó(sem er samt svona smá eins og sjónvarp) og það var bara frábært... hugsaði ekki einu sinni um tölvuna og hvað þá sjónvarpið!!

Hvað varð um það að geta bara setið saman og spjallað? Inná kaffihúsi eða þess háttar.

Bara smá pæling, farin út að GERA EITTHVAÐ með Arnari.

Nei alls ekki hint á nokkurn hátt.... bara leiðist..

SICKMOBILE!

30. apríl 2007 klukkan 05:18
Hæ Hó.. ef þið eruð að spá í því hvað ég er að gera vakandi svona seint/snemma þá er ég nú bara at work. Búin að gera allt sem ég á að gera.
En djöfull er búið að vera mikið ástand á þessarri törn! Ég hef bara ekki upplifað annað eins... þetta eru sko þrjár næturvaktir sem eru að klárast núna og það er buið að vera svona 50% mæting allar vaktirnar. Það er alveg bara rosalegt!! Allir í tvöfaldri vinnu kófsveittir og brjálaðir yfir þessu að heimta hærri laun og læti. Ég er nú minn eiginn boss hérna þannig það er ekkert búið að lenda á mér HEHE.. nei segi svona... oftast þeir sem eiga svæðin sem eru látin í friði en nýðst á nýliðunum og svona...

Líkaminn minn samt titrar af þreytu! Held ég meiki ekki svona mikið næturvaktasession! Stend hálfa vaktina á steypugólfi í lélegum moomboots sem eru ekki mjúkir fyrir fimmaur.

Þetta frí verður relaxing time sko!

Vill bara láta ykkur sem viljið vita að ég er að koma norður 9 eða 10 mai, verð í svona fjóra fimm daga.

Takk fyrir
Tómalausa

Eiríkur hvað?! Kúkablesi miðað við prinsessuna mína!

27. apríl 2007 klukkan 00:36
Vill byrja á því að óska SUMUM til hamingju með afmælið ;) ;*

Síðan að láta ykkur vita að Didda mín Rebekka rústar Eiríki í köku... sjáiði bara.

HÉR! 

Og já hún er rúsínubollan með hljóðneman og er í bleikakjólnum. Finnst ekki leiðinlegt að vera aðalmanneskjan sko ;) *svo stolt*

Kveðja,
Stolta diddan

Gellur stanslaust nöldrandi

24. apríl 2007 klukkan 18:26
Hafiði spáð í því hvað kvennmenn geta ekki verið "svalir".
Alltaf flestir Comics gaurar eða svona groddaralegar gellur (helga braga t.d.). Svona kjánalegar gellur sem geta látið eins og bjánar.
Finnst bara alltaf þegar stelpur eru að segja sögu þá kemur það út eins og gellan sé að nöldra. Þótt að gaur kæmi og segði nákvæmlega eins sögu þá væri hann bara fyndinn. Finnst eins og gellur séu skiptar niður í svona þrjá talsmáta.

1. Groddaralega gellan "hausinn minn er fullur af hlandi!!! HAHA *dett*"
2. Nöldrarinn "allt er svo erfitt.. allt er á móti mér.. það er allt svo leiðinlegt"
3. Gelgjan "omg þúst já híhí omg skiluru þá kom hann bara og þúst og sagði það alveg! é'r ekkjað djóka sko!"

Svo eru gellurnar sem halda að þær séu eðlilegar, eða þúst ekkert af þessu. En í raun eru þær ALLT af þessu! Bara svona smá hingað og þangað.
Ég held að ég sé þannig, þegar ég horfi á gelgjur þá er ég alveg bara "omg hvað ég er fegin að vera ekki svona" en svo gerist eitthvað geggjað spennó þá hleyp ég til Kristrúnar og bara "OMG VEISTU HVAÐ GERÐIST HÍHÍ JÁ ÞÚST ALVEG BARA". Svo er ég stundum svolítið groddaraleg! Alltaf alveg minnst dönnuð þótt ég kunni mig nú alveg smá. Síðan á ég það til að nöldra þótt ég sé stundum alveg "omg hvað kærustur sem nöldra og bitchast eru leiðinlegar" svo geri ég þetta alveg sjálf :D

Held að besta combóið sé sitt lítið af hvoru, myndir aldrei nenna að hanga með manneskju mikið sem er of mikið af einhverju.

Kveðja

Afmælisdagurinn!

22. apríl 2007 klukkan 17:39
Núna svona þegar afmælisdagurinn minn er búinn þá er nú réttast aðeins að segja frá honum fyrir alþýðuna ;)

Fór föstudagskvöld í party til Sölva þar sem hann átti afmæli 18. ap, sem var bara fínt. Svo laugardaginn þá vorum við óli bara að dúlla okkur heima og fórum svo í ljós. Síðan út að borða á Hereford steikhús. Með komu Kristrún, Arnar, Gaui, Bragi, Ylfa og Nátturulega ég og Óli :D
Allir borðuðu yfir sig og fórum heim til Óla að drekka smá og þá komu Ragga, Sölvi og Binni.

Gus Gus var geggjað.

Alveg eldhress núna, svolítið þunn.

Vill þakka fyrir góðan afmælisdag :D

Fékk bestu afmælisgjafir ever. Sko Digital myndavél frá pabba og svo fékk ég Levi's buxur í sumargjöf. Fékk Bodyshop vörur frá mömmu og naomi ilmvatn frá mömmu hans Óla.
Svo aðalgjöfin! (sem ég er ekki ennþá búin að jafna mig útaf kostnaði)

Sími frá Óla!!!! Svona Sony Ericsson K550i alveg glænýr :D

Takk öll ég elska ykkur ;*
Sumar gjafir koma seinna ;) sem er bara kúl!
Kveðja

Spurðu Kristalkúluna!


Taurus

Traditional
Taurus Traits



Patient and reliable
Warmhearted and loving
Persistent and determined
Placid and security loving

On the dark side....

Jealous and possessive
Resentful and inflexible
Self-indulgent and greedy

LIKES
-Stability
-Being Attracted
-Things Natural
-Time to Ponder
-Comfort and Pleasure

DISLIKES
-Disruption
-Being pushed too hard
-Synthetic or "man made" things
-Being rushed
-Being indoors

Lay All Your Love on Me