Smásaga.
15. júlí 2008 klukkan 00:22
Það var ekki enn runnið af honum eftir sólarhringslangan túrinn og bjórinn hafði strax áhrif á hann þrátt fyrir margra ára stífa þjálfun í drykkjuþoli. Hægt leið hann inn í kunnuglega þokuna með gamla gubbulykt í nösunum.
Hann var virkur félagi í rónagengi staðarins. Stundum dragnaðist hann óstöðugur á fótunum gegnum bæinn, fullur og villuráfandi. Hann hlaut samúðina og hún fyrirlitninguna. Í raun ætti því að vera öfugt farið. Hún átti samúðina skilið, hann fyrirlitninguna.
Það var veikleiki hans sem hafði mótað líf hennar. En veikleika hans myndi hún ekki bera framar.
Hún sat kyrr í marga klukkutíma og strauk á honum ennið. Hann hreyfði sig einstaka sinnum í dáinu, en róaðist við snertinguna.
Úti gekk lífið sitt vanagang, en inni stóð tíminn kyrr.
Camilla Läckberg (með smá breytingum)

Hver vill varirnar hennar Lara Flynn Boyle?
06. júlí 2008 klukkan 21:56
Hún Lara Flynn Boyle hefur leikið í mörgu sem maður þekkir. Eins og Man In Black og The Practice.
Hún þykir vera afar falleg kona en hvað fær hana til þess að reyna að vera "enn fallegri" ?
Afhverju gera konur þetta? Er bara búið að segja svo oft við þær að þær séu fallegar að þær eru ónæmar fyrir því eða?
Hvað fær ungar og fallegar konur til þess að fylla í varirnar sínar? Ég myndi skilja það ef hún væri ófríð kona með alveg engar varir. En hún var svo rosalega falleg.
Núna er hún bara eins og einhver hussy.
Svo hérna kemur ein mynd af því hvernig hún er litla kerlingin.
Hverjum langar ekki að fara til lýtalæknis og biðja um The Boyle look?